top of page

Queer Pub Quiz

mið., 05. ágú.

|

Ský Lounge & Bar

Reynið á þekkinguna á hinsegin sögu

Queer Pub Quiz
Queer Pub Quiz

Hvenær og hvar?

05. ágú. 2026, 19:00 – 21:00

Ský Lounge & Bar, Ingólfsstræti 1, 101 Reykjavík, Iceland

Um viðburðinn

Reykjavík Pride er handan við hornið og við hlökkum til að bjóða enn á ný upp á okkar árlega Hinsegin Pub Quiz á SKÝ Lounge & Bar.

Safnið saman liði og reynið á þekkinguna á hinsegin sögu, kvikmyndum, tónlist, poppmenningu, táknmyndum og ýmsu skemmtilegu sem tengist LGBTQIA+ samfélaginu. Kvöldið verður létt, líflegt og fullt af góðri stemningu.

Spurningakeppninni stýra Ormur Guðjónsson og Michy, 5.000 ára dragdrottningin.

Ormur er heiftarlega hýr kvikmyndanördi, háskólanemi og allra handa maður sem hefur lengi haft sérstakan áhuga á kvikmyndum, ekki síst hinsegin kvikmyndum. Við hlið hans verður Michy, sem hefur lifað í gegnum 5.000 ára sögu mannkyns og mun aðstoða hann við að komast að því hversu mikið þið vitið í raun.

Hvort sem markmiðið er að sigra spurningakeppnina eða einfaldlega eiga skemmtilegt kvöld í tilefni af Pride eru öll hjartanlega velkomin.

Deila

bottom of page